Pilates & Barre síðsumar

English below
Opið verður fyrir skráningar þann 5. ágúst

Kennari: Íris Ásmundar 

Síðumar námskeið 2026 

 

Pilates  mán + mið kl. 17:15–18:05 – Tveggja vikna tímabil frá 24. ágúst – 2. september.

Barre mán + mið kl. 18:10–19:10 – Tveggja vikna tímabil frá 24. ágúst – 2. september.

 

 

Pilates verð 14.900 kr.

 

Barre verð 14.900 kr.

 

 

 

 

*Nánari lýsing á námskeiðum neðar

Description

English below

 

Pilates í tímunum notast Íris við hið hefðbundna ‘classical mat’ pilates kerfi, sem hannað var af Joseph Pilates sjálfum. Kerfið byggir á seríu af æfingum sem gerðar eru með áherslu á miðjustyrk, líkamsbeitingu – og meðvitund, leiddar áfram í stöðugu flæði til þess að lengja og styrkja líkamann. Á móti hinu hefðbundna kerfi, munu einhverjir tímanna fylgja ‘contemporary pilates’ nálgun, þar sem einnig eru notuð áhöld eins og boltar og hringir.

Íris leggur mikla áherslu á einstaklingsmiðaða hóptíma, svo hver og einn sé að vinna út frá sínum líkama og markmiðum.


Barre
 er fjölbreytt styrktarþjálfun sem leggur áherslu á að auka vöðvastyrk, bæta liðleika, líkamsstöðu og líkamsbeitingu, efla samhæfingu og þróa skilvirkari hreyfimynstur. Aðferðin á rætur sínar að rekja bæði til klassísku balletttækninnar og Lotte Berk-aðferðarinnar og sameinar kraftmiklar hreyfingar, jafnvægis- og stöðugleikaæfingar, mótstöðuþjálfun og æfingar sem byggja á kyrrstæðri vöðvaspennu (ísómetrískri vöðvavinnu).

 

Íris kennir pilates og barretíma í Kramhúsinu, hún er dansari að mennt og hefur tekið þátt í hinum ýmsu dansverkum og verkefnum, bæði hérlendis og erlendis. Íris leggur mikla áherslu á einstaklingsmiðaða hóptíma, svo hver og einn sé að vinna út frá sínum líkama og markmiðum. Hún er með barrekennararéttindi frá The Barre Collective í London og pilateskennararéttindi frá Exhale Studios í London.

____________

 

Teacher: Íris Ásmundar 

Late summer course

Pilates Mon + Wed at 17:15-18:05 – Two weeks course starts August 24 – September 2

Barre Mon + Wed at 18:10 – 19:10 – Two weeks course starts August 24 – September 2

 

Pilates In the classes, Íris uses the traditional ‘classical mat’ pilates system, which was designed by Joseph Pilates himself. The system is based on a series of exercises that are performed with an emphasis on core strength, body movement, and awareness, led in a continuous flow to elongate and strengthen the body. In contrast to the traditional system, some classes will follow a ‘contemporary pilates’ approach, where tools such as pilates balls and the magic circle are used.

 

​Barre is a versatile strength-training method that focuses on building muscular strength, improving flexibility, enhancing posture and alignment, developing coordination, and creating more efficient movement patterns. Rooted in both classical ballet technique and the Lotte Berk method, Barre combines dynamic movement, balance and stability work, resistance training, and isometric muscle activation to create a challenging yet accessible full-body workout.

 

Íris places great emphasis on individualized group classes, so each participant works according to their own body and goals. She holds Barre teaching certification from The Barre Collective in London and Pilates certification from Exhale Pilates in London in ”classical mat” system.

 

Pilates 14.900 ISK

 

Barre 14.900 ISK

Additional information

Pilates

VOR22 Power Pilates kl.18:25 mán+mið, VOR22 hád kl.12:15 þri+fim, VOR22 síðdegis pilates kl.17:35 mán+mið, VOR22 hád + síðd. flæði 6

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

rebecca

Body by Rebecca / Nína / Nadía

berglind

Dansfitness

asdisros

Hádegis púls

IMG_7761

Hádegis styrkur

irispilate

Pilates & Barre síðsumar