Description
English below
Byrjaðu helgina á salsa.
Salsa hristingur er líflegur hádegistími fyrir öll sem vilja hreyfa sig, læra eitthvað nýtt og fylla á orkuna. Við vinnum með grunnspor, musicality, líkamsbeitingu og stuttar rútínur sem koma bæði líkamanum og skapinu í léttan gír fyrir helgina.
Tímarnir eru léttir, skemmtilegir og aðgengilegir – hvort sem þú hefur aldrei stigið salsaspor eða vilt einfaldlega fá skammt af latín stemningu inn í vikuna.
Rebekka Levin hefur dansað salsa síðan árið 2013 og kennt salsa frá árinu 2017. Hún hefur kennt bæði para- og sóló salsa og leggur ríka áherslu á að miðla ekki aðeins dansinum heldur einnig menningunni sem hann sprettur úr. Rebekka hefur búið víðs vegar um Mið-Ameríku, meðal annars á Kúbu, upprunalandi salsa, þar sem hún sökkti sér í tónlistina, dansinn og menninguna. Í dag sérhæfir hún sig í að leiða fjölbreytta kvennahópa í gegnum salsa og musicality með áherslu á sjálfstraust, sköpunarkraft, líkamsvitund og gleði.
______________
Salsa shake
Teacher: Rebekka Levin
Fridays at 12:10-13:00
Seven weeks course from September 4 – October 16 *Also available to buy as an Open pass class
Kick off the weekend with salsa.
“Salsa Shake” is a lively midday class for anyone wanting to get moving, learn something new, and recharge. We work on basic steps, musicality, body movement, and short routines that put both your body and your mood in the right frame of mind for the weekend.The classes are lighthearted, fun, and accessible—whether you’ve never taken a salsa step before or simply want to inject a dose of Latin vibes into your week.