Additional information
| Beyoncé | V:22 Byrjendur/Beginners 16.3-20.4, VOR22 Byrjendur/Beginners 27.4- 1.6, VOR22 Framhald/ Advanced 6 tímar 25.4-30.5, V:22 Byr/beg 12 vikur 16.3-1.6 |
|---|
Salsa & Sauna – til styrktar Bleiku slaufunni
Kennari: Rebekka Levin
Föstudaginn 23. október kl. 18:10–19:10
Í tilefni af Bleikum október sameinum við dans, vellíðan og góðan málstað í Salsa & Sauna í Kramhúsinu. Ágóðinn rennur beint til Bleiku slaufunnar.
Við byrjum á líflegum salsatíma með Rebekku Levin þar sem við lærum grunnspor salsa og njótum þess að dansa saman. Tíminn er aðgengilegur öllum, hvort sem þú hefur aldrei stigið salsaspor eða vilt einfaldlega fá smá salsa stemningu og góða orku inn í helgina.
Að dansinum loknum gefst tækifæri til að slaka á í saununni og njóta notalegrar stundar í Kramhúsinu. Einnig verður hægt að kaupa sér freyðivín og skála saman fyrir góðum málstað.
Viðburðurinn er til styrktar Bleiku slaufunni og er frábært tækifæri til að gera eitthvað gott fyrir bæði líkama og sál og styðja um leið mikilvægt málefni.
Verð: 3500 kr.
| Beyoncé | V:22 Byrjendur/Beginners 16.3-20.4, VOR22 Byrjendur/Beginners 27.4- 1.6, VOR22 Framhald/ Advanced 6 tímar 25.4-30.5, V:22 Byr/beg 12 vikur 16.3-1.6 |
|---|