NÝTT Opið kort haustið 2026

English below

——————-

OPIÐ KORT  er haustkort sem veitir aðgang að fjölbreyttum fitness tímum frá morgni til kvölds: BODY BY með Rebecca Hidalgo, Nínu og Nadíu, Dansfitness með Berglindi Jóns og Ásdísi Rós, Pilates og Barre Workout með Petru, Salsa hádegishristingur á föstudögum með Rebekku Levin  og Hádegis Styrkur og – Púls mánudaga til fimmtudaga. Einnig eru allir laugardagstímar innifaldir. Tímarnir eru merktir með grænu í stundarskránni. Kramhúsið áskilur sér rétt til að breyta stundaskrá eða fella niður tíma ef þátttaka er ekki næg.

Korthafar fá jafnframt 20% afslátt af dansnámskeiðum Kramhússins. Hafið samband við Kramhúsið með tölvupósti til að nýta afsláttinn.

Verð

Einn mánuður: 28.900 kr.
Þriggja mánaða bundin áskrift: 25.900 kr. á mánuði
Fjögurra mánaða bundin áskrift: 21.900 kr. á mánuði
Fimm tíma klippikort: 22.900 kr., gildir í einn mánuð

Tímabil

Opna kortið er í boði frá 1. september til 31. desember. Bundin áskrift gildir í þrjá eða fjóra mánuði frá kaupdegi og rennur sjálfkrafa út að binditíma loknum.

Hvernig á að bóka tíma:

Bóka þarf hvern tíma í Abler-appinu og afbóka með fyrirvara ef forföll verða.

Bóka tíma : Abler

 

Nánari lýsing neðar / Detailed desciption below

Description

OPEN PASS 

Open Pass gives you access to a varied selection of fitness classes throughout the day, including BODY BY, with Rebecca Hidalgo, Nína and Nadia,  Dance Fitness with Berglind and Ásdís Rós, Pilates Classic and Barre Workout with Petra, lunchtime streinght and cardio classes with Asdís, Erna Gudrun and Asdis Rose, Friday Lunchtime Salsa Shake with Rebekka Levin and Saturday classes.

Open classes are marked in green on the timetable and booked through the Abler app.

Open Pass holders also receive 20% off Kramhúsið dance courses. Please contact us by email to claim the discount.

 

Verð / Pricing

Einn mánuður / One month: 28.900 kr.
Hægt að byrja hvenær sem er á önninni / Start at any time during the term.

Þriggja mánaða áskrift / Three-month membership: 25.900 kr. á mánuði
Lágmarksbinding: þrír mánuðir / Minimum term: three months.

Fjögurra mánaða áskrift / Four-month membership: 21.900 kr. á mánuði
Lágmarksbinding: fjórir mánuðir / Minimum term: four months.

Fimm tíma klippikort / Five-class pass: 22.900 kr.
Gildir í einn mánuð frá kaupdegi / Valid for one month from the date of purchase.

 

Tímabil / Term

1. september–31. desember / September 1–December 31

Takmörkuð stundaskrá verður milli jóla og nýárs. Lokað er á lögbundnum frídögum, Þorláksmessu og gamlársdag.

A limited timetable will be available between Christmas and New Year. Kramhúsið will be closed on public holidays, December 23 and December 31.

 

Bókun / Booking

Bóka þarf hvern tíma sérstaklega í Abler-appinu, þótt kortið sé í gildi. Vinsamlegast afbókið með góðum fyrirvara ef forföll verða svo hægt sé að bjóða öðrum plássið.

A valid pass does not automatically reserve a place in class. Each class must be booked separately through the Abler app. Please cancel in advance if you are unable to attend so that your place can be offered to someone else.

 

Breytingar á stundaskrá / Timetable changes

Kramhúsið áskilur sér rétt til að breyta stundaskrá, fækka tímum eða fella niður einstaka tíma, meðal annars ef þátttaka er ekki næg. Stundaskráin er því birt með fyrirvara.

Kramhúsið reserves the right to amend the timetable, reduce the number of classes or cancel individual classes, including when attendance is insufficient. The timetable is therefore subject to change.

 


 

Nánar um tímana  / Class descriptions

 

Hádegisstyrkur / Lunchtime Strength – Mondays & Thursdays

Skemmtilegur og orkumikill 50 mínútna styrktartími við fjölbreytta tónlist. Tíminn hefst á mjúkri upphitun og síðan taka við styrktar- og jafnvægisæfingar. Í lokin eru góðar teygjur.

A fun and energising 50-minute class combining a gentle warm-up with effective strength and balance exercises. Each class ends with relaxing stretches.

Hádegispúls / Lunchtime Cardio – Tuesdays & Thursdays

Kraftmikill 50 mínútna tími þar sem styrktar- og þolæfingum er blandað saman. Notuð eru lóð og eigin líkamsþyngd og hægt er að aðlaga æfingarnar að eigin getu.

An energising 50-minute class combining strength and cardio exercises using weights and body weight. All exercises can be adapted to suit your level.

Salsa hádegishristingur / Lunchtime Salsa Shake – Föstudaga /Fridays

Byrjaðu föstudaginn með salsa! Líflegur hádegistími með grunnsporum, líkamsbeitingu og stuttum salsa-rútínum. Tíminn er léttur og aðgengilegur og engin fyrri reynsla er nauðsynleg.

Start your Friday with salsa! A lively lunchtime class featuring basic steps, body movement and short salsa routines. The class is fun and accessible, and no previous experience is required.

BODY BY Rebecca  Hidalgo– mánudagar / Mondays

Kraftmikil blanda af Dance Tabata, styrktaræfingum og djúpum teygjum. Dans Tabata er HIIT-þjálfun með danssporum sem eykur þol og kemur púlsinum upp. Í seinni hluta tímans er unnið með styrk fyrir allan líkamann.

A dynamic combination of Dance Tabata, full-body strength training and deep stretching. Dance Tabata is a dance-based HIIT workout designed to improve stamina and cardiovascular fitness.

BODY BY Rebecca Hidalgo – fimmtudagar / Thursdays

Sculpt & Burn er áhrifalítill en krefjandi styrktartími með léttum lóðum og eigin líkamsþyngd. Áhersla er á styrk, líkamsstöðu, jafnvægi, vöðvaþol og liðleika.

Sculpt & Burn is a low-impact but challenging full-body workout using light weights and body weight to improve strength, posture, balance, muscular endurance and flexibility.

BODY BY Nína- þriðjudaga/Tuesdays

Fjölbreyttur tími sem blandar saman styrk, dansi og góðri tónlist. Notuð eru handlóð, teygjur og fleiri áhöld til að byggja upp styrk, stöðugleika og líkamsvitund.

A varied class combining strength, dance and great music. Dumbbells, resistance bands and other equipment are used to build strength, stability and body awareness.

BODY BY Nadía – Miðvikudaga /Wednesdays

Öflugur styrktartími með áherslu á rassvöðva, mjaðmir og kjarna. Æfingarnar fara að mestu fram á gólfi og byggja upp styrk, stöðugleika og líkamsvitund.

A powerful floor-based strength class focusing on the glutes, hips and core while building strength, stability and body awareness.

Pilates klassík / Classic Pilates – Þriðjudaga og fimmtudaga / Tuesdays & Thursdays

Klassískar Pilates-æfingar með góðu flæði á milli hreyfinga. Kennarinn sýnir mismunandi útfærslur svo hver og einn geti valið erfiðleikastig við sitt hæfi.

Classic Pilates exercises with a smooth flow between movements. Different variations are offered, allowing everyone to work at their own level.

Dansfitness / Dance Fitness

Hress og aðgengilegur tími þar sem einföld dansspor, skemmtileg tónlist og dansgleði eru í aðalhlutverki. Létt lóð eru einnig notuð hluta tímans. Engin dansreynsla er nauðsynleg.

An upbeat and accessible workout combining simple dance moves, great music and light strength work. Light weights are also used during part of the class. No dance experience is required.

Barre Workout – Þriðjudaga og fimmtudaga /Thuesdays & Thursdays

Blanda af gólfæfingum og æfingum við ballettslá þar sem notuð eru lóð, boltar, teygjur og eigin líkamsþyngd. Æfingarnar sækja innblástur í Pilates, styrktarþjálfun og jóga, með sérstakri áherslu á kjarna, rassvöðva og læri.

A mix of floor work and ballet-barre exercises using weights, balls, resistance bands and body weight. Inspired by Pilates, strength training and yoga, with a particular focus on the core, glutes and thighs.

Styrkur og liðleiki / Strength & Flexibility – Laugardaga / Saturdays

Fjölbreyttar styrktar- og jafnvægisæfingar með eigin líkamsþyngd, lóðum og teygjum. Tímanum lýkur með djúpum teygjum sem auka liðleika og slaka á líkamanum.

A varied strength and balance workout using body weight, dumbbells and resistance bands. Each class ends with deep stretches to improve flexibility and release tension.

BODY BY Kram – Laugardaga / Saturdays

Öflugur styrktartími með áherslu á rassvöðva, mjaðmir og kjarna. Fjölbreyttar gólfæfingar byggja upp styrk, stöðugleika og góða líkamsbeitingu.

A powerful floor-based strength class focusing on the glutes, hips and core while improving strength, stability and body control.

Afró Workout – Laugardaga / Saturdays

Orkumikill tími með einföldum Afró-danssporum við Afrobeat og trommutónlist. Tíminn kemur púlsinum upp og eykur styrk, samhæfingu og jafnvægi.

An energetic workout featuring simple Afro dance moves set to Afrobeat and drum rhythms. A fun way to improve cardiovascular fitness, strength, coordination and balance.

Additional information

Mánuðir fyrir Græna kortið

1 mánuður, 2 mánuðir, 3 mánuðir, 4 mánuðir

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

rebecca

Body by Rebecca / Nína / Nadía

berglind

Dansfitness

asdisros

Hádegis púls

IMG_7761

Hádegis styrkur

irispilate

Pilates & Barre síðsumar