Description
English below
Opnar fyrir skráningar 5. ágúst
Kennarar: Rósalind og Íris Stefanía
Dulúðugi dansinn úr austrinu sem styrkir bak og maga og hentar alls konar líkömum og öllum aldri. Dansinn eykur úthald og hreyfigetu. Magadans hefur verið stundaður í árþúsundir til að auka frjósemi, á meðgöngu, í fæðingu og eftir barnsburð. Hreyfingarnar eru mjúkar, styrkja grindarbotninn og auka vellíðan.
Magadans – byrjendur með Írisi Stefaníu
Fösutudaga kl. 17:00-18:00
Sjö vikna tímabil frá 11.desember – 23. október
Þessir tímar eru fyrir þær sem hafa ekki kynnst magadansi áður og líka þær sem hafa tekið námskeið áður en vilja styrkja grunninn betur. Námskeiðið er fyrir þær sem vilja hrista rass og maga rækilega og komast í gott stuð um leið og líkaminn kemst í betra form.
Íris leiðir þig í gegnum mjúka upphitun og fer því næst í grunnspor magadansins á meðan seiðandi tónar fylla rýmið. Við lærum að skilja hvaða spor passa við hvaða tóna og takta og lærum að hnýta saman hin ýmsu spor um leið og við fræðumst um uppruna magadansins. Við lærum dansrútínu við skemmtilegt lag sem við dönsum saman sem hópur. Undir lok tímans eru teygjur.
Magadans er fyrir alla kroppa og leggur Íris áherslu á að hafa gaman í tímunum og að við tökum líkama okkar í sátt og lærum að taka okkur ekki of alvarlega.
Magadans – tabla solo með Írisi Stefaníu
Þessir tímar eru fyrir vana magadansara sem vilja fá meiri áskorun og sjá framfarir í tækni og sköpun.
Íris leiðir hópinn í gegnum mjúka upphitun og fer því næst í grunnspor magadansins á meðan seiðandi tónar fylla rýmið. Við styrkjum okkur í tækni og leggjum okkur fram við að auka sjálfstraust okkar sem dansarar og fá nemendur tækifæri til að semja sínar eigin stuttu rútínur. Við vinnum með hreyfispuna og lærum að hlusta og hreyfa okkur í samspili við tónlistina. Að auki lærum við dansrútínu við skemmtilegt lag sem við dönsum saman sem hópur. Undir lok tímans eru teygjur.
Magadans er fyrir alla kroppa og leggur Íris áherslu á að hafa gaman í tímunum og að við tökum líkama okkar í sátt og lærum að taka okkur ekki of alvarlega.
_________________________________________
Teachers: Rósalind and Íris Stefanía
Bellydance
The mysterious dance of the East strengthens the back and core and is suitable for all body types and all ages. It improves endurance, mobility, and body awareness. Belly dance has been practiced for thousands of years and has traditionally been associated with enhancing fertility, supporting women during pregnancy, assisting in childbirth, and aiding postnatal recovery. Its gentle, flowing movements strengthen the pelvic floor, improve posture, and promote overall well-being.
Belly Dance – Beginners with Íris Stefanía
Fridays at 17-18
Seven weeks course from September 7 – October 23
These classes are designed for anyone who is new to belly dance, as well as those who have taken classes before and would like to strengthen their foundation. The course is perfect for anyone who wants to shake their hips and belly, have fun, and enjoy an energetic workout while improving overall fitness.
Íris will guide you through a gentle warm-up before introducing the fundamental movements of belly dance as enchanting music fills the room. You will learn how different movements correspond to specific melodies, rhythms, and beats, and how to combine them into flowing combinations. Along the way, you will also learn about the origins and cultural background of belly dance. During the course, we will learn a fun choreography to an enjoyable piece of music, which we dance together as a group. Each class ends with stretching.
Belly dance is for everybody. Íris creates a welcoming and supportive atmosphere where the focus is on having fun, embracing our bodies as they are, and learning not to take ourselves too seriously.
Belly dance – tabla solo with Íris Stefanía
Thursdays at 18:10-19:10
Seven or fourteen weeks course available
September 7 – October 22 / December 10
These classes are for experienced bellydancers who are up for a challenge. We will work further on your technique and creativity.
Iris leads the group through a soft warm-up. Thereafter we go into the basic steps of belly dancing while soulful tunes fill the space. We strengthen our technique and work hard to increase our confidence as dancers. We learn to listen and move with the music. In addition, we learn a dance routine to a fun song that we dance together as a group. Towards the end of the class we do stretches and relaxation.
Belly dancing is for all bodies, and Íris emphasizes on having fun during the class and that we learn not to take ourselves too seriously.