Barre

English below

 

Kennarar: Íris Ásmundardóttir og Petra Baumruk er afleysingarkennari

 

Barre & Pilates með Írisi
þriðjudaga & fimmtudaga kl. 12:10-13:00
Sjö vikna tímabil hefst 27. október – 12. desember – Örfá laus pláss

Barre með Írisi
mánudaga & miðvikudaga kl. 18:10-19:10

Fjórtán vikna námskeið hefst 7. september – 12. desember – FULLT

 

Laugardagstímar innifaldir, Styrkur & liðleiki og Afro workout. 

 

Sjö vikna tímabil verð frá 22.950 kr. á mánuði

Heildarverð 45.900 kr.

 

*Nánari lýsing á námskeiði neðar

 

Description

English below

 

Kennarar: Íris Ásmundardóttir og Petra Baumruk er afleysingarkennari

 

Barre með Írisi

er fjölbreytt styrktarþjálfun sem leggur áherslu á að auka vöðvastyrk, bæta liðleika, líkamsstöðu og líkamsbeitingu, efla samhæfingu og þróa skilvirkari hreyfimynstur. Aðferðin á rætur sínar að rekja bæði til klassísku balletttækninnar og Lotte Berk-aðferðarinnar og sameinar kraftmiklar hreyfingar, jafnvægis- og stöðugleikaæfingar, mótstöðuþjálfun og æfingar sem byggja á kyrrstæðri vöðvaspennu (ísómetrískri vöðvavinnu). Í tímunum er lögð rík áhersla á að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur. Það er alltaf boðið upp á mismunandi útfærslur á æfingunum, sem og framhaldsæfingar, sem gera öllum kleift að finna áskorun við sitt hæfi, óháð reynslu eða getu! Í hverjum tíma færð þú að kynnast nýjum æfingum og fjölbreyttum útfærslum og ferð heim sterkari, orkumeiri og með tilfinninguna að hafa tekið vel á því.

 

Barre & pilates með Írisi

Bæði barre  og pilates ímarnir hafa verið gífurlega vinsælir í Kramhúsinu og því höfum við ákveðið að sameina þessi tvö námskeið í eitt – fyrir þau sem vilja það besta úr báðu! Pilatestíminn er kenndur eftir klassísku pilatesfræðunum og í barretímanum er unnið á hraðara tempói með áherslu á góða líkamsstöðu og líkamsbeitingu. Notast er við létt handlóð, pilatesbolta og stöngina. Með þessu móti fá iðkendur heildræna og alhliða nálgun á sína líkamsrækt og það besta sem bæði þessi æfingakerfi bjóða upp á. Pilatestíminn verður á þriðjudögum og barretíminn á fimmtudögum. 

 

Íris heillaðist af Barre á meðan hún stundaði dansnám við Rambert School, þar sem hún uppgötvaði hversu vel þjálfunin studdi við dansþjálfunina. Þar sem hún hefur stundað ballett frá unga aldri hefur hún mikla ánægju af því að miðla undirstöðuatriðum tækninnar og sameina styrk, stjórn og lengd í líkamanum. Hún er með barrekennararéttindi frá The Barre Collective í London og pilateskennararéttindi frá Exhale Studios í London. Íris hefur notið gífurlegra vinsælda með sinni góðu nærveru og faglegri kennslu í Kramhúsinu síðastliðin ár.

 

____________________

Teachers: Íris Ásmundardóttir and Petra Baumruk is a substitude teacher

 

Barre with Íris
Mondays & Wednesdays at 18:10-19:10

Fourteen weeks course starting on September 7 – December 12 – FULL

Barre & Pilates with Iris
Tuesdays & Thursdays at 12:10-13:00
Seven weeks course starting on October 27 – December 12
Only few spots left

 

Barre is a versatile strength-training method that focuses on building muscular strength, improving flexibility, enhancing posture and alignment, developing coordination, and creating more efficient movement patterns. Rooted in both classical ballet technique and the Lotte Berk method, Barre combines dynamic movement, balance and stability work, resistance training, and isometric muscle activation to create a challenging yet accessible full-body workout.

 

Barre & Pilates with Íris Both Pilates and the Barre classes have been very popular at Kramhúsið, so we decided to combine these two courses into one – for those who want the best of both worlds! The Pilates class is taught according to the classical Pilates principles, while the Barre class works at a faster pace, with focus on good posture and body alignment, using light hand weights, the Pilates ball, and the barre. This way participants receive a holistic and comprehensive approach to their fitness and get the best of what both methods have to offer. The Pilates class will be on Tuesdays, and the barre class on Thursdays. 

 

Íris fell in love with Barre while studying at Rambert School, where she discovered how perfectly it complemented her dance training. Having trained in ballet from a young age, she is passionate about sharing the fundamentals of the technique—combining strength, control, and length through the body—in a way that is welcoming and accessible to everyone, whether you have a dance background or not. Every class celebrates individual progress. Íris places great emphasis on creating an inclusive environment where everyone feels supported, offering thoughtful modifications and progressions to suit different abilities, goals, and experience levels. No two classes are the same. You’ll experience fresh routines and creative variations each session, leaving feeling stronger, accomplished, and energised, with the satisfying sense of having challenged your body in new ways.

 

Saturdays are included, Strength & mobility and Afro workout

 

Additional information

Jazz ballett / Barre

VOR22 tímabil 25.4-30.5, VOR22 tímabil II

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

rebekkalev

Salsa & Sauna – Til styrktar bleiku slaufunni

image0 (4)

Odissi – indverskur klassískur dans

bodyby

Body by Rebecca / Nína / Berglind

berglind

Dansfitness

asdisros

Hádegis púls