Ballett & styrkur Workshop 10. ágúst

 

Ballet & styrkur vinnustofa með Hrefnu

10. ágúst 17:30-20:30

Ballet & Styrkur er spennandi vinnustofa undir leiðsögn Hrefnu Kristrúnar Jónasdóttur þar sem dansgleði, styrkur og líkamsvitund fara saman.

Vinnustofan hefst á 1 klst. og 45 mín. balletttíma þar sem áhersla er lögð á að njóta þess að dansa við klassíska popptónlist. Unnið er með flæði, líkamsbeitingu, liðleika og styrk – með það að markmiði að byggja upp öruggari og sterkari dansara.

Í beinu framhaldi tekur við 1 klst. og 15 mín. styrktartími þar sem unnið er markvisst að því að auka þol, styrk og liðleika í skemmtilegu andrúmslofti og við góða tónlist.

Hrefna hefur kennsluréttindi í PBT (Progressing Ballet Technique) frá árinu 2022. PBT er styrktartækni sérstaklega þróuð fyrir dansara en hentar fólki á öllum aldri og með ólíkan bakgrunn. Áhersla er lögð á rétta líkamsbeitingu, samhæfingu, jafnvægi, lengingu og aukinn liðleika.

Styrktartíminn hefst á 20 mínútna stuð-cardio til að koma blóðflæði og orku af stað. Því næst tekur við styrktarvinna fyrir helstu vöðvahópa og tímanum lýkur með 15 mínútna teygjum.

Vinnustofan hentar öllum sem vilja bæta sig í dansi – hvort sem um er að ræða nemendur eða atvinnudansara sem vilja byggja upp styrk og líkamsvitund. Grunnþekking í ballett nauðsynleg. Level interm.

Um Hrefnu Kristrúnu Jónasdóttur

Hrefna hóf ballettnám sitt í Bandaríkjunum og útskrifaðist síðar frá Listdansskóla Íslands eftir níu ára nám þar. Hún hefur sótt fjölda alþjóðlegra sumarnámskeiða, meðal annars hjá San Francisco Ballet, Royal Danish Ballet og Joffrey Ballet.

Hún starfaði sem atvinnuballettdansari hjá Ballet Theatre UK í fjögur ár þar sem hún dansaði bæði aðal- og sólóhlutverk á sýningarferðum um Bretland. Hún hefur einnig unnið með English National Ballet í uppsetningum á Cinderella og Swan Lake í Royal Albert Hall og nýverið með Birmingham Royal Ballet á sýningum um Bretland og í Japan.

Auk dansferilsins hefur Hrefna mikinn áhuga á styrktarþjálfun og hefur unnið náið með styrktarþjálfurum innan ballettheimsins og hjá Kaizen Performance Center til að dýpka þekkingu sína og miðla henni áfram til annarra.

 

Verð 9.900 kr.

Description

 

 

 

Additional information

Flex body

H2022 Hádegistímar þri+fim, H2022 Síðdegis mán+mið, H2022 Síðdegis þri+fim, 22/23 Hádegistímar þri+fim, 22/23 Síðdegis mán+mið, 22/23 Síðdegis þri+fim

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

irispilate

Pilates & Barre síðsumar

ballett10.ag

Ballett & styrkur Workshop 10. ágúst

IMG_8816

NÝTT Opið kort haustið 2026

contemp

Contemporary

margret

Vasadiskó