Vasadiskó

English below

Opið fyrir skráningar þann 5. ágúst

 

Vasadiskó

Þriðjudaga kl. 16:10 – 17:10

Sjö vikna námskeið hefst 8. september – 20. október

 

Verð frá 14.950 kr. á mánuði

Heildarverð 29.900  kr.

 

*Nánari lýsing á námskeiði neðar

 

Description

English below

Kennari: Margrét Erla Maack

Vasadiskó 

Vasadiskó er dans- og gleðitími þar sem við spólum í allar áttir í tónlistarvali og látum tónlistina sem þátttakendur elska leiða okkur áfram. Hér má búast við öllu frá diskói til R&B yfir í nostalgíska slagara, danssmelli og óvæntar perlur. Stemningin er alltaf í fyrirrúmi og markmiðið er einfalt: Að hreyfa sig, sleppa fram af sér beislinu og hafa gaman.

Vasadiskó er blanda af dansi, líkamsrækt og geðrækt. Við byrjum á djúsí upphitun, hristum úr okkur streituna með rassaskvettum og gellulátum, dönsum skemmtilegar rútínur og gefum okkur líka pláss fyrir núvitund, losun og tengingu við líkamann. Tímarnir byggja upp styrk, liðka mjaðmir, bak og miðju og skilja þátttakendur eftir orkumeiri, léttari og brosandi.

Það skiptir ekki máli hvort þú hafir dansað alla ævi eða sért að stíga fyrstu sporin, tímarnir eru hannaðir þannig að bæði byrjendur og lengra komnir geti notið sín. Þetta er líka fullkomið tækifæri fyrir vinkonur, mæðgur, systur eða samstarfsfélaga til að eiga skemmtilega stund saman einu sinni í viku, hlaða batteríin og dansa sig í betra skap.

Eftir tímann ertu sveitt, orkumikil og með lag á heilanum – og hlakkar strax til næsta tíma.

 

___________

Vasadiskó

Teacher: Margrét Erla Maack

Tuesdays at 16:10 – 17:10

Seven weeks course starting on the September 9 – October 20

Margrét Erla teaches Vasadiskó which is an Icelandic word for walkman, that translates directly to Pocket disco. This is a dance and feel-good class guided by the songs and music taste of participants. Expect everything from disco and R&B to nostalgic hits, dance anthems, guilty pleasures, and unexpected gems. The atmosphere always comes first, with one simple goal: to move your body, let go, and have fun.

Vasadiskó is a joyful blend of dance, fitness, and mental well-being. We start with a juicy warm-up, shake off stress with booty shakes, learn fun dance routines, and also make space for mindfulness, release, and reconnecting with our bodies. The classes help build strength, improve mobility in the hips, back, and core, and leave participants feeling energized, lighter, and smiling.

Whether you’ve been dancing your whole life or you’re taking your very first steps, these classes are designed so everyone can join in and enjoy themselves. It’s also the perfect weekly activity for friends, mothers and daughters, sisters, or colleagues to spend quality time together, recharge, and dance their way into a better mood.

By the end of class, you’ll be sweaty, energized, and humming a song all the way home and already looking forward to the next class.

 

Additional information

Beyoncé

V:22 Byrjendur/Beginners 16.3-20.4, VOR22 Byrjendur/Beginners 27.4- 1.6, VOR22 Framhald/ Advanced 6 tímar 25.4-30.5, V:22 Byr/beg 12 vikur 16.3-1.6

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

rebecca

Body by Rebecca / Nína / Nadía

berglind

Dansfitness

asdisros

Hádegis púls

IMG_7761

Hádegis styrkur

irispilate

Pilates & Barre síðsumar