Description
English below
Afró framhald – fyrstu tvær vikurnar fær Kramhúsið til sín vinsæla Afródanskennara og trommara beint frá Gíneu:
Rokia Sano er stórkostlegur dansari í Ballet Merveilles de Guinée og mjög vinsæll kennari hjá nemendum frá öllum heimshornum sem ferðast til Gíneu. Rokia hefur ferðast til Japan að kenna nemendum dans. Hún er frábær á sviði og hefur tekið þátt í óteljandi sýningum og viðburðum í Gíneu. Alpha Camara er stórkostlegur dansari í Ballet Merveilles de Guinée og er frábær á sviði. Hann hefur tekið þátt í óteljandi sýningum og viðburðum í Gíneu og hjálpað Mamady að taka á móti nemendum frá öllum heimshornum og leitt þau í gegnum menningu Gíneu. Ousmane Sylla er stórkostlegur doun doun trommari í Ballet Merveilles de Guinée og Camara Percussion. Hann er frábær á sviði og þekktur fyrir mikla orku í trommuleik. Ousmane hefur tekið þátt í óteljandi sýningum og viðburðum í Gíneu. Younoussa Camara er stórkostlegur Djémbe trommari í Ballet Merveilles de Guinée og stofnandi og stjórnandi Camara Percussion. Hann er talinn einn af bestu trommurum sinnar kynslóðar og er frábær kennari. Younoussa er frábær á sviði og hefur tekið þátt í óteljandi sýningum og viðburðum í Gíneu og Senegal.
Afró framhald – Kennarar/trommarar: Sandra Sano, Mamady Sano, Alseny Sylla og Rubin Karl
14 vikna námskeið
Mánudagar og miðvikudagar kl. 18:20-19:35 og Afro workout á laugardögum.
Fyrsti tími: 2. september (gestakennarar fyrstu tvær vikurnar)
Síðasti tími: 7. desember
Afró framhald, eitt af vinsælustu námskeiðum Kramhússins. Kraftmiklir danstímar við heitan trommuslátt. Mikil hreyfing og rythmi. Afró er ekki bara skemmtilegt heldur eykur það orku, styrk og þol auk þess að vera endorfín- og streitulosandi. Afrókennararnir og frábæru trommararnir okkar eru með yfir 20 ára reynslu af kennslu og sérhæfa sig í menningarheimi Gíneu í Vestur afríku. Trommusláttur, kraftmikill dans, hiti og gleði.
ATH Mamady Sano fer aftur til Gíneu þann 7. nóvemember og þá tekur Sandra við danskennslunni.
Afró byrjendur – Kennarar/trommarar: Bangaly Fofana, Baba Bangoura, Agnes Bangoura og Cheick Bangoura
7 vikna námskeið
Mánudagar kl. 19:35-20:45 og innifalið er Afro workout á laugardögum kl. 10:30 með Söndru Sano
Næsta 6x vikna námskeið hefst 4. nóvember.
Afro byrjendur, kraftmiklir danstímar þar sem lögð áhersla á að þátttakendur upplifi ósvikna afríska stemningu þar sem leysist úr læðingi ótrúleg orka og gleði við að hreyfa sig eftir trylltum trommuslætti. Afró danskennari er Baba Bangoura og trommarar eru Cheick Bangoura og Bangaly Fofana en auk þess mun Bangaly kenna dans með Baba. Agnes Bangoura mun sjá um upphitunina. Afró byrjendur hæfir fólki á öllum aldri. Afródansinn getur verið mjúkur og seiðandi og einnig kraftmikill og orkuríkur. Dansinn gefur hverjum og einum svigrúm til að njóta sín á eigin forsendum, jafnt vönum sem óvönum.
________________________________________
Afro advanced – Teachers and drummers: Sandra Sano, Mamady Sano, Alseny Sylla and Rubin Karl
14 weeks course
Mondays and Wednesdays at 18:20-19:35 and Afro workout on Saturdays at 10:30
First class: 2nd September
Last class: 7th December
Afro advanced are dynamic dance classes to hot drum beats. Lots of movement and rhythm. Afro is not only fun, but it increases energy, strength and endurance as well as being an endorphin and stress reliever. First two weeks there are amazing guest teachers from Gínea. Our African teachers and our excellent drummers have over 20 years of teaching experience and specialize in the culture of Guinea, West Africa. Drum beat, energetic dance, heat and joy!
Afro Beginners -Teachers and drummers: Baba Bangoura, Cheick Bangoura, Bangaly Fofana and Agnes Bangoura
7 weeks course
Mondays at 19:35-20:45 and included is Afro workout on Saturdays at 10:30
Next 6x weeks course starts on the 4th November.
Afro beginners, during the classes, emphasis will be placed on the participants experiencing an authentic African atmosphere, where incredible energy and joy are released when they move along after rhythmic drumbeat, Baba Bangoura is the Afro dance teacher and Bangaly Fofana and Check Bangoura are the drummers, Bangaly will occasionally teach the dance. Agnes Bangoura will do the warm up. Afro dancing is cardio-heavy and suitable for people of all ages. Afro dancing can be soft and seductive and also powerful and energetic. The dance gives everyone the opportunity to enjoy themselves on their own terms, both familiar and unfamiliar.