Bein í baki 65+ | mán+mið kl. 11:00 | 14 vikur, HAUST 2024

English below

Kennari: Ásdís Halldórsdóttir
Fjórtán vikna námskeið
Mánudagar og miðvikudagar kl. 11:00
Fyrsti tími: 9. september
Síðasti tími: 11. desember

Allir laugardagstímar eru innifaldir, Styrkur & liðleiki, Flex Body, og Afro workout

*Nánari lýsing neðar

 

72.900 kr.

In stock

Description

English below

Kennari: Ásdís Halldórsdóttir

Fjórtán vikna námskeið
Mánudagar og miðvikudagar kl. 11:00
Fyrsti tími: 9. september
Síðasti tími: 11. desember

Bein í Baki eru vinsælir leikfimi tímar fyrir konur á aldrinum 65+. Tíminn er byggður upp með mjúkri upphitun fyrir liðamót og þol-, styrktar- og jafnvægisæfingum, í seinni hluta tímans eru æfingar á dýnu ásamt teygjum og slökun. Æfingarnar eru hannaðar til þess að styrkja stoðkerfið og þétta beinin með eigin líkamsþyngd og léttum lóðum. Áhersla er lögð á að styrkja vöðva sem við notum í daglegu lífi svo sem fótleggi, mjaðmir bak og kvið.

Beinþynning er algengt vandamál, sérstaklega hjá konum. Regluleg hreyfing hefur jákvæð áhrif á beinheilsu, spornar gegn beinþynningu og bætir líðan. Styrktar og jafnvægisæfingar eru mjög áhrifamiklar, bæta jafnvægið og minnka líkurnar á falli og brotum.  

Tilvaldir tímar fyrir konur sem eru hættar að vinna og vilja finna sér stað og góðan félagsskap í líkamsrækt. Heitt á könnunni eftir hvern tíma.

Ásdís Halldórsdóttir er íþróttafræðingur að mennt og hefur sérhæft sig í hreyfingu fyrir 60+ síðastliðin ár. Hún hefur 28 ára starfsreynslu sem hóptímakennari. Er einnig Pilates og Jógakennari.

__________

Teacher: Ásdís Halldórsdóttir
Fourteen weeks course
Mondays and Wednesdays at 11:00
First class: 9th September
Last class: 11th December

Bein í baki are popular exercise classes for women 65+. The Class is structured with a soft warm-up for joints, endurance, strength and balance exercises, in the second half of the class there are mat exercises together with stretching and relaxation. The exercises are designed to strengthen the musculoskeletal system and tighten the bones with your own body weight and light weights. Emphasis is placed on strengthening muscles that we use in everyday life such as legs, hips, back and abdomen.

Osteoporosis is a common problem, especially in women. Regular exercise has a positive effect on bone health, prevents osteoporosis and improves well-being. Strength and balance exercises are very effective, improving balance and reducing the likelihood of falls and fractures. 

Selected classes for women who have stopped working and want to find a place and good company in fitness. Brewed Coffee/tea after each class. 

Ásdís Hallldórsdóottir is a sports scientist by training and has specalized in exercise for people 60+. She has 28 years of teaching experience and is also a Pilates and Yoga instructor.

Additional information

Leikfimi

VOR22 mán+mið kl.12:05, VOR22 mán+mið+fös, VOR22 fjögurfimmtán, VOR22 fimmfimmtán, VOR22 föstudagshristingur

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

IMG_7927

Jazz

hafids

Músíkleikfimi

kynveran

Kynveran

ásdís

Bein í baki 65+

Margret

Skvísulæti