Stakir tímar og stutt tímabil – Dans

Ertu allt í einu í dansstuði – uppgötvar að þú hefur tíma, langar að dansa meira eða prufa nýjan stíl?

Þá er hér tækifæri til að droppa inn í stakan tíma eða prufa allskonar í eina viku.

Þátttaka í stökum tíma er alltaf háð því að pláss sé á viðkomandi námskeið og við mælum ekki með að koma án þekkingar inn í námskeið sem sett eru upp fyrir framhaldshópa.

Ferlið felst einfaldlega í því að skrá sig í tímaskráningu og tryggja sér pláss og ganga síðan frá greiðslu hér á fyrir valinn danstíma.

 

3.500 kr.4.000 kr.

Nánari lýsing

Til að koma til móts við aukna eftirspurn eftir stökum tímum og styttri tímabilum bjóðum við nú okkar kæru Kramverjum að droppa inn eftir hentugleika – hvort sem það er til að kynna sér ákveðna stíla áður en tekin er ákvörðun um að skrá sig á næsta námskeið – eða einfaldlega löngun til að dansa meira þennan daginn eða þessa vikuna 🙂

Þátttaka í stökum tíma er alltaf háð því að pláss sé á viðkomandi námskeið og við mælum ekki með að koma án þekkingar inn í námskeið sem sett eru upp fyrir framhaldshópa.

Ferlið felst einfaldlega í því að skrá sig í tímaskráningu og tryggja sér pláss og ganga síðan frá greiðslu hér á fyrir valinn danstíma.

Hægt er að velja einn stakan tíma eða vikuflæði sem býður þá uppá ansi marga möguleika.

Gildistími fyrir stakan tíma er sólarhringur frá kaupum (þ.e. hægt er að tryggja sér aðgang degi áður en tiltekin tími er á dagskrá) og vikuaðgangur gildir í viku frá kaupdegi.

Við erum með þessu að stíga fyrstu skref inní nýja skráningarmöguleika og erum að vinna í því að koma langþráðu allsherjar opnu Kramhúskorti í umferð  – þetta gerist allt … hægt og sígandi. Samfélagslega er það að verða einfaldara að opna námskeiðin og við erum að vinna í tæknimálunum (fækka þrepunum). Með ykkur í liði þá finnum við lausnir og erum alltaf þakklát fyrir að heyra í ykkur og fá gagnrýni, hugmyndir og óskir.

Viðbótarupplýsingar

Dans

VOR22 Stakur Beyoncé, VOR22 Stakur Contemporary, VOR22 Jazz/ballet barre, VOR22 Stakur Showgirls, VOR22 Jazz/ballet barre, VOR22 Ballett fyrir fullorðna, VOR22 Magadans, VOR22 Stakur Sensual fusion Plús, VOR22 Stakur Sensual fusion, VOR22 Stakur Burlesque, VOR22 Ein vika í alls konar dans, VOR22 Britney-Millenníur

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

image0

Pilates með Magdalenu

IMG_7927

Jazz

hafids

Músíkleikfimi

IMG_7833

Laugardagskort