Stakir tímar og stutt tímabil – Orka & Hreyfing

Viltu hreyfa þig meira, styrkja og mýkja eða einfaldlega slaka á?

Nú er tækifæri til að prufa allskonar blöndu af jóga og pilates og finna hvað hentar best.

Hægt er að velja um að droppa inn í stakan tíma eða prufa allskonar í eina viku. Ef þú vilt tryggja þér aðgang í ákveðin námskeið eða yfir lengra tímabil þá er best og hagstæðast að skrá sig beint á tiltekið námskeið eða nýta græna kortið.

Þátttaka í stökum tíma er alltaf háð því að pláss sé á viðkomandi námskeið. Við mælum með opnu hugarfari þegar komið er inná tímabil sem þegar er hafið – það er svo gott að ætlast ekki til fullkomnunar í fyrsta tíma.

Ferlið felst einfaldlega í því að skrá sig í tímaskráningu og tryggja sér pláss og ganga síðan frá greiðslu hér á fyrir valinn danstíma.

 

3.000 kr.

Nánari lýsing

Til að koma til móts við aukna eftirspurn eftir stökum tímum og styttri tímabilum bjóðum við nú okkar kæru Kramverjum að droppa inn eftir hentugleika – hvort sem það er til að kynna sér ákveðna stíla áður en tekin er ákvörðun um að skrá sig á næsta námskeið – eða einfaldlega löngun til að dansa meira þennan daginn eða þessa vikuna 🙂

Þátttaka í stökum tíma er alltaf háð því að pláss sé á viðkomandi námskeiði. Fyrst þarf að skrá sig í tímaskráningu og tryggja sér pláss og ganga síðan frá greiðslu hér á fyrir valinn tíma.

Hægt er að velja einn stakan tíma eða vikuflæði sem býður þá uppá ansi marga möguleika.

Gildistími fyrir stakan tíma er sólarhringur frá kaupum (þ.e. hægt er að tryggja sér aðgang degi áður en tiltekin tími er á dagskrá) og vikuaðgangur gildir í viku frá kaupdegi.

Við erum með þessu að stíga fyrstu skref inní nýja skráningarmöguleika og erum að vinna í því að koma langþráðu allsherjar opnu Kramhúskorti í umferð  – þetta gerist allt … hægt og sígandi. Samfélagslega er það að verða einfaldara að opna námskeiðin og við erum að vinna í tæknimálunum (fækka þrepunum). Með ykkur í liði þá finnum við lausnir og erum alltaf þakklát fyrir að heyra í ykkur og fá gagnrýni, hugmyndir og óskir.

Viðbótarupplýsingar

Orka & hreyfing

VOR22 Stakur Pilates, VOR22 Stakur Herra Jóga, VOR22 Stakur Jóga&styrkur, VOR22 Stakur JógaNidra, VOR22 Stakur Flex body, VOR22 Power pilates, VOR22 Ein græn vika – gildir í alla græna tíma

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

Screenshot 2024-07-08 at 09.31.44

Úti-sumartímar 2024

IMG_7927

Jazz – Skráning opnar 7. ágúst

hafids

Músíkleikfimi – Skráning opnar 7. ágúst

Ásdís

Bein í baki 65+ – Skráning opnar 7. ágúst