Stakir tímar og stutt tímabil – Afró

Viltu hoppa í afró hita og svita!!! 

Áttu allt í einu smá tíma fyrir þig eða langar þig  einfaldlega að dansa meira og prufa nýjan stíl?

Þá er hér tækifæri til að droppa inn í stakan tíma eða dansa alla daga í eina viku.

Þátttaka í stökum tíma er alltaf háð því að pláss sé á viðkomandi námskeið og við mælum ekki með að koma án þekkingar inn í námskeið sem sett eru upp fyrir framhaldshópa.

Ferlið felst einfaldlega í því að skrá sig í tímaskráningu og tryggja sér pláss og ganga síðan frá greiðslu hér á fyrir valinn danstíma.

 

3.500 kr.12.200 kr.

Nánari lýsing

Til að koma til móts við aukna eftirspurn eftir stökum tímum og styttri tímabilum bjóðum við nú okkar kæru Kramverjum að droppa inn eftir hentugleika – hvort sem það er til að kynna sér ákveðna stíla áður en tekin er ákvörðun um að skrá sig á næsta námskeið – eða einfaldlega löngun til að dansa meira þennan daginn eða þessa vikuna 🙂

Þátttaka í stökum tíma er alltaf háð því að pláss sé á viðkomandi námskeið og við mælum ekki með að koma án þekkingar inn í námskeið sem sett eru upp fyrir framhaldshópa.

Afró Sano – á mánudögum og miðvikudögum er hraðari taktur og miðað við framhaldsnema

Afró Bangoura – á þriðjudögum og fimmtudögum er meira fyrir byrjendur og miðstig

Workout tímar á laugardögum er fyrir alla.

Ferlið felst einfaldlega í því að skrá sig í tímaskráningu og tryggja sér pláss og ganga síðan frá greiðslu hér á fyrir valinn danstíma.

Hægt er að velja einn stakan tíma eða vikuflæði sem býður þá uppá ansi marga möguleika.

Gildistími fyrir stakan tíma er sólarhringur frá kaupum (þ.e. hægt er að tryggja sér aðgang degi áður en tiltekin tími er á dagskrá) og vikuaðgangur gildir í viku frá kaupdegi.

Við erum með þessu að stíga fyrstu skref inní nýja skráningarmöguleika og erum að vinna í því að koma langþráðu allsherjar opnu Kramhúskorti í umferð  – þetta gerist allt … hægt og sígandi. Samfélagslega er það að verða einfaldara að opna námskeiðin og við erum að vinna í tæknimálunum (fækka þrepunum).

Með ykkur í liði þá finnum við lausnir og erum alltaf þakklát fyrir að heyra í ykkur og fá gagnrýni, hugmyndir og óskir.

 

 

Viðbótarupplýsingar

Afró

VOR22 Stakur Sanotími, VOR22 Stakur Bangouratíma, VOR22 Stakur Workout Laugardagstími, VOR22 Ein vika í Afró

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

iris.pilates

PILATES POP UP tími með Írisi 26. mars

irisbarre

BARRE POP UP tími með Írisi 27. mars

123sandra

Afrobeat

bangaly

AFRÓ POP UP tími með Bangaly 25. mars