Description
English below
Kennarar: Áslaug Kristín Zoega (Ásdís Halldórs og Erna Guðrún kenna í janúar mánuði og svo tekur Áslaug við)
Mánudagar og miðvikudagar kl. 12:05- 12:55
Hádegis workout er styrktaræfingatími með fönk og popptónlist. Mjúk upphitun ásamt styrktaræfingum og jafnvægisæfingum byggt á Barre æfingakerfinu. Skemmtilegar teygjur í lok hvers tíma. Bætir stoðkerfið, eykur orku og minnkar stress.
Áslaug Kristín Zoega hefur alltaf elskað að tjá sig í gegnum hreyfingu, dans og flæði, og hefur mikinn áhuga á heildrænni heilsu. Hún bjó lengi í Sydney, og áður New York og Kaupmannahöfn, þar sem hún kynntist pilates og heillaðist strax af orkunni og tengingunni sem skapast við líkamann. Hún byrjaði að kenna í Ástralíu, og kennir nú pilates, barre og blandaða workout-tíma. Í tímum hjá Áslaugu er lögð áhersla á vöðvatengingu, lengingu og styrk (hún er með brúnt belti í MMA!).
_____________
Teachers: Áslaug Kristín
Mondays and Wednesdays at 12:05-12.55
Twelve weeks course starting on the 5th Jan – 28th March
SIX WEEKS course starting on the 12th Jan – 18th Feb
Noon workout is a workout class with funk and pop music. A soft warm-up that flows into strengthening exercises along with balance based on Barre. Lovely stretches at the end of each session. Strengthens the musculoskeletal system, increases energy and reduces stress.
All Saturdays classes are included. Strength & balance, Flex Body and Afro workout.