Description
English Below
Kennari: Salóme Sól
Feminin Energy Á námskeiðinu er lögð áhersla á fjölbreyttar æfingar og dansrútínur sem auka sjálfstraust og tengingu við eigin líkama. Tímarnir bjóða upp á útrás fyrir kvenorkuna í takt við ýmsa tónlist frá listakonum eins og FKA Twigs, Doechii, Arca, Charli XCX, Kali Uchis, Shygirl, Björk, Rosalía, Beyoncé, Cobrah, Sevdaliza og fleiri gyðjum. Salóme Sól blandar saman áhrifum úr ólíkum dansstílum í skemmtilegar kóreógrafíur sem geta verið sexý, sassy, sensual, feisty, fallegar eða sjóðheitar.
Tímunum er skipt upp í tvo hluta: fyrri helmingurinn einblínir á æfingar sem styrkja líkamann, tengja hug og líkama og undirbúa okkur undir seinni hlutann þar sem við lærum kóreógrafíu. Tímarnir henta vel þeim sem hafa grunn í dansi, pilates, yoga eða annarri hreyfingu – byrjendur og miðstig.
Salóme Sól útskrifaðist frá Klassíska Listdansskólanum árið 2022 og hefur síðan þá starfað sem sjálfstætt starfandi dansari og danshöfundur við fjölbreytt verkefni. Hún bjó um tíma í Berlín þar sem hún sótti námskeið og vinnustofur í ýmsum dansstílum, eins og frameup/heels, dancehall, modern og vogue. Hún hefur einnig dvalið á Kúbu, í Mexíkó og Kosta Ríka til þess að kynna sér salsa-menninguna sem ríkir þar. Þrátt fyrir fjölbreyttan bakgrunn er grunnur hennar fyrst og fremst í contemporary dansi og hún stundar nú nám við samtímadans deild Listaháskóla Íslands. Hún hefur dansað með sænsku tónlistargyðjunni Loreen og var ein þeirra sem hlutu styrk úr Sviðslistasjóði Rannís árið 2025.
_______________________________
Teacher: Salóme Sól
Wednesdays at 20:35 – 21:35
New course starts April 8 – May 13
Note – No classes during the week leading up to Easter, on Easter Monday or labourday May 1.
Only for 18+
Feminine Energy This course focuses on viriety of exercises and dance routines designed to boost confidence and deepen your connection with the body. The classes provide a space for feminine energy moving to music by artists such as FKA Twigs, Doechii, Arca, Charli XCX, Kali Uchis, Shygirl, Björk, Rosalía, Beyoncé, Cobrah, Sevdaliza, and many more iconic female performers. Salóme Sól blends influences from different dance styles into into fun, dynamic choreographies that can be sexy, sassy, sensual, feisty, beautiful and incredibly hot.
Classes are divided into two parts: the first half focuses on exercises that strengthen the body, connect mind and body, and prepare you for the second half, where you learn choreography. The course is suitable for those with a background in dance, Pilates, yoga, or other movement practices – beginners and intermediate levels welcome.
Salóme Sól graduated from Klassíski Listdansskólinn in 2022 and has since worked as a freelance dancer and choreographer on a variety of projects. She spent time in Berlin, attending workshops and classes in diverse dance styles such as frameup/heels, dancehall, modern, and vogue. She has also spent time in Cuba, Mexico, and Costa Rica exploring salsa culture. Although her training is diverse, her foundation is primarily in contemporary dance, and she is currently studying at the Contemporary Dance Department of the Iceland Academy of the Arts. Among her many projects, Salóme has danced with Swedish music icon Loreen and was one of the recipients of a grant from the Performing Arts Fund of Rannís in 2025.