Nánari lýsing
Dance and music, creative games. For kids age four-five yo with a parent.
Dans, tónlist og skapandi leikir fyrir fjögurra til fimm ára börn með foreldri.
Guðbjörg Arnardóttir hefur séð um þessi námskeið og haldið utan um yngstu Kramverjana til margra ára. Hún hefur mikla reynslu og miðlar því vel og fallega. Í vetur munu Anna Hera og Ása Valgerður bætast í kennarahópinn og taka þátt í leikgleðinni. Kennararnir þrír sjá um mismunandi hluta námskeiðsins og verður hver með sínar áherslur í tónlist og hreyfingu.
Guðbjörg hefur sérhæft sig í dansi og skapandi hreyfingu og notar leiki til að miðla til barnanna. Anna Hera notast við svipaðar aðferir en leggur sérstaka áherslu á samvinnu barns og foreldris (ContaKids tækni) þegar það á við. Ása Valgerður er menntaður tónlistarkennari og kórstjóri, með mikla reynslu á þeim sviðum og mun leggja áherslu á söng, hreyfingu og taktþjálfun.
Kennt á laugardögum frá klukkan 10:35 til 11:20