Tónlist og skapandi hreyfing | 4-5 ára, laugardaga kl.10:35 | Vetur I 2023

English velow

Kennarar: Guðbjörg Arnardóttir, Anna Hera og Ása Valgerður.

Fyrir fjögurra til fimm ára börn með foreldri.

Kennt á laugardögum kl 10:35 til 11:20. Fyrsti tíminn er 14. janúar og tímabilinu lýkur 18. febrúar, 6 vikna tímabil. 

ATH Aðeins eitt foreldri fylgir hverju barni og takmarkaður fjöldi kemst að hverju sinni.

*Námskeiðið er haldið með fyrirvara um að næg skráning náist.

*Nánari lýsing neðar

19.800 kr.

In stock

Nánari lýsing

ENGLISH BELOW

Dans, tónlist og skapandi leikir fyrir fjögurra til fimm ára börn með foreldri/forráðamanni
Laugardagsmorgnar kl. 10:35-11:20
Sex vikna námskeið hefst 14. janúar

Guðbjörg Arnardóttir hefur séð um þessi námskeið og haldið utan um yngstu dansara Kramhússins til margra ára. Hún hefur mikla reynslu og miðlar því vel og fallega. Í vetur munu Anna Hera og Ása Valgerður bætast í kennarahópinn og taka þátt í leikgleðinni. Kennararnir þrír sjá um mismunandi hluta námskeiðsins og verður hver með sínar áherslur í tónlist og hreyfingu.

Guðbjörg hefur sérhæft sig í dansi og skapandi hreyfingu og notar leiki til að miðla til barnanna.  Anna Hera notast við svipaðar aðferir en leggur sérstaka áherslu á samvinnu barns og foreldris (ContaKids tækni) þegar það á við. Ása Valgerður er menntaður tónlistarkennari og kórstjóri, með mikla reynslu á þeim sviðum og mun leggja áherslu á söng, hreyfingu og taktþjálfun.

_________
Dance, music and creativity
Four to five year olds – accompanied by an adult
Saturday mornings at 10:35 – 11:20 for 6 weeks. 14th January 14th- February 18th.

Dance, music and creative games for three-year-olds with a parent.

Guðbjörg teaches dance and movement through play. Anna Hera teaches ContaKids where children and adults play together and Ása Valgerður focuses on musicality and rhythm. 

Viðbótarupplýsingar

Skapandi hreyfing barna

V20 3ja ára og foreldri, janúar, V20 4ra-5 ára jan-mars, V20 3ja ára og foreldri febrúar, V20 3ja ára og foreldri mars, V20 4ra-5 ára, mars, V20 3ja ára og foreldri jan-mars, V20 3.- 5 ára jan-mars, V20 Contakids 3.- 5 ára 3x í febrúar, V20 3.- 5 ára feb-mars 8 vikur

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

Beyoncé style

Magadans / Bellydance

Siggu tímar Sumar 2023

Pilates