Pilates | Hádegi, Þri+fim | 7 vikur, 11. apríl-25. maí Vorönn 2023

English below

Umsjón: Ásdís Halldórsdóttir

Næsta tímabil hefst 11. apríl – 25. maí. 

Hádegistímar – þriðjudaga og fimmtudaga kl.12:15 – 13:00

ATH – Ekki er kennsla tvo rauða fimmtudaga ( 20. apríl og 18. maí). Tímarnir í staðinn yfir á 21. apríl og 19. maí.

Þátttakendum býðst að nýta sér alla græna laugardagstíma Kramhússins.

*Nánari lýsing neðar

 

 

29.800 kr. or 14.900 kr. / á mánuði í 2 mánuði

In stock

Viltu staðgreiða eða greiðsludreifa?

Nánari lýsing

Umsjón: Ásdís Halldórsdóttir

Pilates er eitt aðalsmerki Kramhússins undanfarin ár þar sem og iðkendur vita hvaða sérstaða og gæði eru í boði.

Pilates byggist á kerfisbundnum æfingum.

Hver æfing virkjar kviðvöðvana og aðferðin leggur áherslu á að styrkja svæðið sem kallað er aflstöðin, þ.e. kviðinn, mjóhrygginn, ytri og innri lærvöðvana og rassinn. Markmið Pilates er að lengja, styrkja og stæla líkamann án þess að vöðvarnir verði fyrirferðarmeiri. Kerfið heldur iðkendum við efnið, er hvetjandi, skemmtilegt og þaulhugsað tl að styrkja heilbrigðan líkama og gera hann að einni samræmdri heild. Eftir hvern tíma er fólk afslappað, endurnært og fullt orku. Helsti kostur Pilates er styrkur, þar má meðal annars nefna miðjustyrk, einbeitingu, samhæfingu, ryþma, flæði, öndun og nákvæmni.

Ásdís hefur farið á fjölda kennaranámskeiða í hóptímakennslu og heilsueflingu frá árinu 1996 til dagsins í dag. Hún lærði m.a. Pilates hjá Michael King Pilates kennara í Englandi árið 2001 og fór reglulega eftir það til ársins 2004 í endurmenntun hjá honum. Hún kenndi Pilates og ýmsa hóptíma erlendis á skemmtiferðaskipum á árunum 2001-2004. Tók Les Mills Body Balance réttindi árið 2006 sem er sambland af Thai Chi, Jóga og Pilates og kenndi í kjölfarið Body Balance í mörg ár. Var sjálfstætt starfandi Pilates kennari um árabil. Einnig lauk hún Fit Pilates kennara námskeiði árið 2010 og Barre kennara námskeið hjá Guðríði Torfadóttur í Reebok fitness árið 2017. Hún er 220 tíma jógakennari frá Jógakennaraskóla Kristbjargar frá árinu 2018 og er með BSc í íþróttafræði og MSc í mannauðsstjórnun. Ásdís leggur áherslu á að nemendum hennar líði vel og geri æfingarnar rétt. Markmiðin eru að styrkja stoðkerfið, liðka líkamann, minnka verki og bæta vellíðan.

Next Pilates course period starts on the 11th April – 25th May. Twice a week on tuesdays and thursdays 12:15. 

Pilates is one of the hallmarks of Kramhúsið in recent years and students know what specialties and qualities are available in class.

Pilates is based on systematic and well-thought-out exercises. Each exercise activates the abdominal muscles and the method focuses on strengthening the area called the power plant, ie. the abdomen, lumbar spine, the outer and inner thigh muscles and the buttocks. Pilates largely avoids high impact, high power output, and heavy muscular and skeletal loading. The system keeps practitioners engaged in the material, is inspiring, fun and well-thought-out in order to strengthen a healthy body and make it one cohesive whole. After each class, people are relaxed, refreshed, and full of energy.

Pilates’ main benefit is strength, including central strength, concentration, coordination, rhythm, flow, breathing, and accuracy. Time is offered for people who have a foundation in Pilates and also those who are beginners.

Viðbótarupplýsingar

Pilates

VOR22 Power Pilates kl.18:25 mán+mið, VOR22 hád kl.12:15 þri+fim, VOR22 síðdegis pilates kl.17:35 mán+mið, VOR22 hád + síðd. flæði 6

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

Beyoncé style

Magadans / Bellydance

Siggu tímar Sumar 2023

Pilates