Nánari lýsing
Kennari: Íris Stefanía
Magadans miðstig
Dulúðugi dansinn úr austrinu sem styrkir bak og maga og hentar alls konar líkömum og öllum aldri. Dansinn eykur úthald og hreyfigetu. Magadans hefur verið stundaður í árþúsundir til að auka frjósemi, á meðgöngu, í fæðingu og eftir barnsburð. Hreyfingarnar eru mjúkar, styrkja grindarbotninn og auka vellíðan.
Þessir tímar eru fyrir þær sem hafa tekið að minnsta kosti eitt til tvö námskeið í magadansi áður og vilja fá meiri áskorun og sjá framfarir í tækni og sköpun.
Íris leiðir hópinn í gegnum mjúka upphitun og fer því næst í grunnspor magadansins á meðan seiðandi tónar fylla rýmið. Við styrkjum okkur í tækni og leggjum okkur fram við að auka sjálfstraust okkar sem dansarar og fá nemendur tækifæri til að semja sínar eigin stuttu rútínur. Við vinnum með hreyfispuna og lærum að hlusta og hreyfa okkur í samspili við tónlistina. Að auki lærum við dansrútínu við skemmtilegt lag sem við dönsum saman sem hópur. Undir lok tímans eru teygjur.
Magadans er fyrir alla kroppa og leggur Íris áherslu á að hafa gaman í tímunum og að við tökum líkama okkar í sátt og lærum að taka okkur ekki of alvarlega.
Íris fékk fyrst áhuga á magadansi eftir að frænka hennar mætti með dansandi jólagjöf inn í stofuna hjá foreldrum hennar milli jóla og nýárs árið 2003. Í kjölfarið skráði hún sig í magadans hjá Josy Zareen í janúar 2004 og var þá ekki aftur snúið. Hún hefur dansað og kennt með pásum frá þeim degi.
__________
Teacher: Íris Stefanía
Midlevel on Tuesdays at 20:45-21:45.
A new 7 weeks course starts on 12th September.
Belly dancing is for a variety of body types, and Íris focuses on having fun in class, body acceptance, and learning not to take oneself too seriously.
Íris guides you through a focused warm-up and then goes into the basic techique of the belly dance while the seductive tones fill the space. We learn to understand which movements go with different rhythms and music styles, and then we piece together the various moves. We learn a routine and at any given time at least two proper shimmy songs are played to shake it all out!