Nánari lýsing
Umsjón: Íris Stefanía
Beginners and midlevel / Byrjendur og þær sem hafa tekið fyrstu skrefin.
Kennt á mánudögum /Mondays at 20:15-21:15. Íris Stefanía sér um byrjendur með áherslu á mýkt og mjaðmir.
Magadans er fyrir alla kroppa og leggur Íris áherslu á að hafa gaman í tímunum, taka líkama sinn í sátt og læra að taka sig ekki of alvarlega/ Belly dancing is for all the hunchbacks, and Iris focuses on having fun in class, taking her body in harmony and learning not to take herself too seriously.
Íris leiðir þig í gegnum mjúka upphitun og fer því næst í grunnspor magadansins á meðan seiðandi tónar fylla rýmið. Við lærum að skilja hvaða spor passa við hvaða tóna og takta og lærum að hnýta saman hin ýmsu spor. Við lærum dansrútínu og í hverjum tíma eru spiluð að minnsta kosti tvö almennileg “hristu” lög og þá er tekið vel á því. Undir lok tímans eru teygjur. / Iris guides you through a soft warm-up and then goes into the base footsteps of the belly dance while the seductive tones fill the space. We learn to understand which steps fit with any tones and rhythms and learn to knuckle together the various steps. We learn a dance routine and at any given time at least two proper “shake” songs are played, and then it’s well received.
Íris fékk fyrst áhuga á magadansi eftir að frænka hennar, Kristína Berman, mætti með dansandi jólagjöf inn í stofuna hjá foreldrum hennar milli jóla og nýárs árið 2003. Í kjölfarið skráði hún sig í magadansnámskeið og var þá ekki aftur snúið. Hún hefur dansað og kennt með pásum frá þeim degi.
Þegar hún er ekki að dansa kennir hún leiklist og vinnur sem sviðslistakona og sem athafnastýra hjá Siðmennt.