Nánari lýsing
Rósalind og Íris Stefanía sjá um Magadans Kramhússins
Dulúðugi dansinn úr austrinu sem styrkir bak og maga og hentar alls konar líkömum og öllum aldri. Dansinn eykur úthald og hreyfigetu. Magadans hefur verið stundaður í árþúsundir til að auka frjósemi, á meðgöngu, í fæðingu, eftir barnsburð, til að halda kynorkunni lifandi og til að dansa sig í gegnum breytingaskeiðið. Hreyfingarnar eru mjúkar, styrkja grindarbotninn og auka vellíðan.
Byrjað er á mjúkri upphitun og tækni og því næst eru dansrútínur og í hverjum tíma eru spiluð að minnsta kosti tvö almennileg “hristu” lög og þá er tekið vel á því. Undir lok tímans eru teygjur.
______
Rósalind Hansen and Íris are the belly dance teachers in Kramhúsið The next 4 weeks course starting on the 6th June Classes are every Tuesdays at 20:05-21:05 taught by Íris Stefanía.
The mysterious dance from the east strengthens the back and stomach and is suitable for all kinds of bodies and ages. The dance increases endurance and mobility. Belly dancing has been practiced for millennia to increase fertility, pregnancy, childbirth, postpartum, to keep the sex drive alive and to dance through menopause. The movements are soft and suitable for all women. Exercises strengthen the gluteal muscles and pelvic floor. Great emphasis on well-being and a safe space.