Nánari lýsing
Kennari: Magnea Ýr
Blandaðar æfingar þar sem unnið er á dýnu og ballettstöng. LA Barre er blanda af pilates, jóga og styrktaræfingum þar sem æfingarnar henta bæði byrjendum og lengra komnum. Passað er upp á að líkamsstaðan sé rétt allan tímann á meðan unnið er að móta alla vöðva líkamans. Frábærir tímar með skemmtilegri tónlist undir þar sem við bætum samhæfingu, finnum tengingu við djúpvöðvakerfi líkamans og aukum liðleika.
Magnea Ýr hefur æft dans frá unga aldri og útskrifaðist með BA af sviðslistabraut frá LHÍ af samtímadansbraut vorið 2015. Hún hefur kennt nútímadans, jazz, ballett, spuna og líkamssrækt síðan haustið 2010. Þá hefur hún einnig tekið þátt í ýmis verkefnum tengt leikhúsi, sjónvarpi og tónlistarmyndböndum. Magnea Ýr er með mikin metnað fyrir heilsu, dansi og líkamsrækt og leggur mikið upp úr að öllum líði vel í tímum hjá henni.
Sex vikna námskeið hefst 9. janúar og kennt er á mánudögum kl. 19:05-20:05.
____
Teacher: Magnea Ýr
Exercises on a mattress and a ballet pole. LA Barre is a mix of pilates, yoga, and strength exercises where the exercises are suitable for both beginners and advanced users. Making sure your posture is correct all the time while working on shaping all the muscles in the body. Great classes with fun music underneath where we improve coordination, feel connected to the body’s deep muscle system and increase flexibility.
Classes start January 9th, for six weeks on Mondays at 19:05-20:05.