Nánari lýsing
Róberta Michelle hefur slegið í gegn í sumar í gæsapartýjum með húllafimi, sem er sambland af hefðbundnu húlleríi, dansi, þolæfingum og stuði.
Húllað verður á öllum stöðum líkamans við frábæra tónlist. Tímarnir eru styrkjandi, liðkandi og auka þolið, auk þess að vera einstök æfing í núvitund og sjálfsmildi.
Tímarnir eru kenndir á þriðjudögum kl. 17:05, á frábærum leikfimitíma og hefjast 20. september.
“Hvar á maður að byrja?! Einstaklega skemmtilegt og hressandi námskeið og er það að hluta til að það er sjúklega gaman að húlla og læra allskyns “trick” og svo er það hinn hlutinn og það er hún Róberta gleðigjafi og lífspeppari. Ég er búin að fara á tvö námskeið sem ég átti ekki von á að ég myndi gera. Hafði ákveðið að prófa að fara á eitt og sjá til hvernig mér myndi líka það. Ég er búin að kaupa mér húllahring og er að æfa mig heima á milli tíma af því að þetta hefur komið svo skemmtilega á óvart! Þægilegir tímar, maður labbar sáttur og glaður út og getur ekki beðið eftir að mæta næst. Algjörlega þess virði að prófa og maður sér ekki eftir því ***** 5 stjörnur!”
Jenný Magnúsdóttir.