Nánari lýsing
Haust 2022 5.sept-10.des – (14 vikur) + Vetur og Vor 2023 (22 vikur)
Heildartímabil 5.sept – 10. des og 2. jan – 3. júní (36 kennsluvikur)
Síðdegistímar þriðjudaga og fimmtudaga kl.16:15-17:15
Sú nýjung býðst núna að hægt er að skrá sig í eina önn eða ganga strax frá skráningu út árið og tryggja sinn tíma. Vaxtalaus greiðsludreifing er í boði hvort sem valin er önn eða ár (kennsluárið telur haust, vetur og vor = 36 vikur).
Umsjón: Sigga Ásgeirs
Allra vinsælasti styrktar- og brennslutíminn í Kramhúsinu. Fyrir þau sem vilja komast í form og auka liðleika á skemmtilegan hátt við góða tónlist. DanceCardio, eigin líkamsþyngd, létt lóð, teygjur og moving meditation. Sigga Ásgeirs hefur þróað tímana í 6 ár og les vel í hvað hópurinn þarf hverju sinni. Alhliða tími sem styrkir, liðkar og gleður.
Our most popular fitness class. For all those who want to get in shape and increase flexibility in a fun way with good music. Sigga Asgeirs has been developing this fitness program for the past 6 years. Using her own flare she has created a unique mixture of Dance Cardio, strength-building exercises using your own bodyweight, light weights, stretches, and moving meditation.
Fjölmargir tímar í hverri viku sem hægt er að velja úr.
Mánudagar og miðvikudagar kl. 16:30
Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 12:05 og aftur síðdegis kl.16:15
Laugardagar kl.11:00 (ATH, eingöngu í boði fyrir skráða þátttakendur en ekki hægt að velja sem námskeið)
Þátttakendur skrá sig á þá tíma sem þau helst ætla að nýta og tryggja sér þannig pláss en mega síðan mæta í aðra tíma – svo lengi sem pláss leyfir.
Tímaskráning er nauðsynleg í alla aukatíma og afskráning ef eigin tímar eru ekki nýttir.