Nánari lýsing
Foreldrar/Forsjáraðilar og börn kynnast ævintýraheimi Afríku á einstaklega skemmtilegan hátt.
Kennarar námskeiðsins eru Sandra og Mamady Sano sem hafa mikla reynslu í afródansi og trommuspili. Fjölskylduafróið hefur verið vinsælt meðal barna og nú endurvekjum við þennan einstaka ævintýraheim. Þau nota leiki og söng til að miðla til barnanna og fá alla til að lifa sig inn í ævintýraheim Afríku.
Við mælum með að vera á tánum í tímanum.
FjölskylduAfró er fyrsta laugardag hvers mánaðar kl 13:00 til 13:50
Næsti tími er 1. október og síðasti er 3. desember. Engin kennsla laugardaginn 22. október vegna vetrarfrís.