Nánari lýsing
Foreldrar/Forsjáraðilar og börn kynnast ævintýraheimi Afríku á einstaklega skemmtilegan hátt.
Kennarar námskeiðsins eru Sandra og Mamady Sano sem hafa mikla reynslu í afródansi og trommuspili. Fjölskylduafróið hefur verið vinsælt meðal barna og nú endurvekjum við þennan einstaka ævintýraheim. Þau nota leiki og söng til að miðla til barnanna og fá alla til að lifa sig inn í ævintýraheim Afríku.
Við mælum með að vera á tánum í tímanum.
Haustönn í FjölskylduAfró kennt á laugardögum frá klukkan 13:00 til 13:50
Fyrsti tíminn verður laugardaginn 10.september og tímabilinu lýkur 3. desember. Engin kennsla laugardaginn 22. október vegna vetrarfrís.
ATH hægt er að nýta frístundastyrk Reykjavíkurborgar ef barn er 6 ára á árinu 2022.
Hér er linkur inn á Sportabler þar sem hægt er að kaupa námskeiðið og um leið nálgast frístundastyrkinn
Kópavogur: https://www.sportabler.com/shop/kopfri/kramhusid
Reykjavík: https://www.sportabler.com/shop/frirvk/kramhusid