Nánari lýsing
Námskeið sem sameinar tvö af okkar mest krefjandi námskeiðum.
Contemporary þriðjudaga kl. 17:15-18:30 með Hebu Eir og
Ballett á fimmtudögum kl. 17:15-18:30 með Cameron Corbett
Fimm vikna námskeið hefst 28. febrúar
Contemporary
Þessir samtímadanstímar einkennast aðallega af ýmsum spuna-dansaðferðum auk þess að læra dansfrasa. Í þessum tímum skoðum við hagnýtar hreyfingar sem nálgun í hreyfispuna, þar sem hver og einn vinnur með eigin líkama og eigin getu, óháð fyrirfram ákveðnum stíl eða formum. Í gegnum þessar æfingar einblínum við sérstaklega á líkamsvitund hvers og eins með áherslu á jarðtengingu, tengingu við miðju og rýmisvitund.
Ballett fyrir lengra komna
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa góðan grunn í ballett, samtímadansi eða fimleikum og ástríðu fyrir dansi. Tímarnir eru sérsniðnir fyrir þau sem hafa áður stundað ballett og vilja rifja upp taktana og nota ballettinn sér til skemmtunar og líkamsræktar. Krefjandi tímar fyrir fólk sem vill fara vel í tæknina.
___________________
Contemporary on Tuesdays 17:15-18:30 with Heba Eir
Ballet on Thursdays at 17:15-18:30 with Cameron Corbett
Please note that these classes are for people with a good dance foundation.
Next course period is 5 weeks and starts February 28th.
Contemporary
In these contemporary dance classes the main focus is on movement improvisation as well as learning contemporary dance phrases. In the class we will explore practical movements as an entry point into movement improvisation, where each one works with their own body in their own way finding their own personal movement. We will explore different exercises which focus on grounding, centering and spatial
Ballet – Advanced
The course is intended for those who have a good foundation in ballet, dance or gymnastics, and a passion for dancing.