Burlesque | þriðjud. kl.18:35, 6 vikur 11. apríl. | Vetur I 2023

English below

Kennari: Margrét Erla Maack

Burlesque fyrir byrjendur sem lengra komna.

Næstu 6 vikur hefjast 11. apríl.

Kennst einu sinni í viku á þriðjudögum kl. 18:35

Fyrstu sex vikurnar er farið í grunninn og svo hefst miðstigið.
Vinsamlega athugið að námskeiðið er ætlað “shes, theys and gays.”
*Nánari lýsing neðar

 

19.800 kr.

In stock

Nánari lýsing

Kennari: Margrét Erla Maack
Námskeiðið er fyrir 18 ára og eldri – she’s, they’s and gays.

Burlesque
Sex(í) vikna námskeið þar sem farið er í hreyfiheim klassísks burlesque. Hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Tilvalið fyrir forvitna og þau sem hafa sterkan grunn og vilja styrkja grunninn.
Farið er í grunnspor og tækni, karakteravinnu og vinnu með leikmuni. Vinsamlega athugið að í grunninn er burlesque fullorðins skemmtun sem snýst að miklu (en ekki öllu) leyti um að fækka klæðum.  Skemmtilegir og gefandi tímar hvort sem þú stefnir á að finna sexíið á ný og fara í hláturskast einu sinni í viku eða stefnir upp á svið.
 
Burlesque dýrðarljómi liðinna tíma svífur yfir vötnum þar sem lostagyðjan lætur á sér kræla. Burlesque hefur heldur betur slegið í gegn í Kramhúsinu og leiðir Margrét Erla Maack kennsluna. Upp úr þessum námskeiðum hafa margir burlesque-sýningarhópar orðið til: Dömur og herra hafa nú starfað í sex ár og skemmt um víðan völl, til dæmis á Brighton Fringe og Sóðabrók sem unnu Audience Favorite á Reykjavík Fringe 2022. Burlesque er vaxandi listform hér á landi, ekki síst að þakka umsjónarkennara námskeiðsins, Margréti Erlu Maack. Hún kemur reglulega fram ásamt Reykjavík Kabarett og á hinum goðsagnakennda The Slipper Room NYC.

____________

 

Teacher: Margrét Erla Maack

A six weeks Burlesque course in which the dynamic world of classical burlesque is explored. Suitable for beginners and advanced alike. Ideal for the curious and those who have a strong foundation and want to strengthen the foundation.
Basic steps and techniques, character work and work with props are carried out. Please note that, at its core, burlesque adult entertainment is largely (but not entirely) about reducing the number of garments. Fun and rewarding times whether you’re aiming to find the sexy again and have a fit of laughter once a week or if you have showgirl dreams.

 

Clothing: Comfortable that does not impede movement and otherwise, you can wear anything. We recommend a red lipstick.

Classes are once a week; Tuesdays at 18:35-19:35 

Next 6 weeks course starts April 11th.

Viðbótarupplýsingar

Burlesque

VOR22 Seinni hluti frh námskeiðs frá 19. april, V:22 Byrjendur/Beginners 6 weeks 1.3-5.4. 2022, V:22 Framhald/ Advanced & Bubblur 26.feb + 10 vikur 1.mars-maí 2022, V:22 Framhald/ Advanced 10 vikur 1.mars-maí 2022, V:22 Bubblur&Burlesque 26.feb kl.17:00

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

Græna kortið Vorönn 2023

Beyoncé style

Contemporary / Samtímadans

Afró