Nánari lýsing
Only for 18 years and older! “shes, theys and gays.”
Burlesque framhald / Advanced – 9 vikur og lokasýning
Kennari /Teacher: Margrét Erla Maack
Burlesque
Dýrðarljómi liðinna tíma svífur yfir vötnum þar sem lostagyðjan lætur á sér kræla. Burlesque hefur heldur betur slegið í gegn í Kramhúsinu og leiðir Margrét Erla Maack kennsluna. Upp úr þessum námskeiðum hafa margir burlesque-sýningarhópar orðið til: Dömur og herra hafa nú starfað í fimm ár og skemmt um víðan völl, til dæmis á Brighton Fringe; Túttífrútturnar sem unnu Best Ensemble á Reykjavík Fringe Festival 2021; og Sóðabrók sem unnu í ár Audience Favorite á sömu hátíð.
Burlesque framhald
Burlesque framhald er ætlað þeim sem hafa góðan grunn í burlesque og hafa atriðahugmynd sem þau vilja taka áfram. Námskeiðið hefst í byrjun október og lýkur með nemendasýningu í Þjóðleikhúskjallaranum í lok nóvember/byrjun desember. Athugið að hugmyndin þarf alls ekki að vera fullmótuð. Fyrstu 2-3 tímana vinnum við í hópatriði og spjöllum um atriðin sem við ætlum að gera. Síðan förum við á flug að skapa atriði og vinna í þeirri tækni sem Margréti finnst að komi sér vel hvað varðar hópinn.
Clothing: Comfortable that does not impede movement and otherwise, you can wear anything 🙂
“Valdeflandi og virkilega skemmtilegt. Blanda af barnslegri gleði og fullkomnum kynþokka. Kynnti mig fyrir hluta af mér sem mér datt ekki í hug að væri til og ég elska það.” Margrét Dórothea, nemandi og nú burlesqueskemmtikraftur
Kennt á þriðjudögum /classes are once a week; Tuesdays kl. 20:20 – 21:20