Description
English below
Barre
Kennari: Berglind Jónsdóttir
Þriðjudagar kl. 20:30-21:35
Fyrsti tími: 11. september
Síðasti tími: 11. desember
Barre tímarnir eru blanda af æfingum við ballettstöng, á gólfi og á dýnu. Barre æfingarnar henta bæði byrjendum og lengra komnum og eru innblásnar af pilates, ballett styrktaræfingum og jóga. Áhersla er lögð á rétta líkamsstöðu á meðan unnið er að því að móta alla vöðva líkamans. Til viðbótar við Barre æfingarnar verður dansflæði í tímunum sem kemur púlsinum og svitanum vel af stað. Það þarf enga dansreynslu til að taka þátt enda um meira “dans fitness” að ræða heldur en rútínur og kennari leiðir hópinn í öllum sporum. Bæði Barre æfingarnar og dansinn gerast í takt við hressa og taktfasta tónlist.
Berglind Jónsdóttir hefur kennt dans og leikfimi í Kramhúsinu í mörg ár og séð um sívinsæla tíma, meðal annars, jazzballett, Eurovision, Spice Girls og RuPaul. Berglind kemur ætíð með bros og birtu í alla sína tíma – hvort sem það eru föst námskeið eða stakir tímar þá getum við alltaf lofað mikilli stemmningu, svita og gleði!
Mælum með að klæðast þægilegum léttum fatnaði og vera annað hvort með íþróttaskó eða berfætt.
____
Seven weeks course
Teacher: Berglind Jónsdóttir
Tuesdays at 20:35 – 21:35
First class: 11th September
Last class: 11. desember
Barre, the classes are a mixture of exercises at the ballet barre, on the floor and on a mat. The exercises are suitable for both beginners and advanced and are inspired by pilates, ballet strength exercises and yoga. The emphasis is on proper posture while working on shaping all the muscles of the body. In addition to the Barre exercises there will be a dance flow in the classes that will drive up the pulse and sweat. There’s no dance experience needed and this will be more in line with “dance fitness” rather than routines and the teacher leads the students through all steps. Both the Barre exercises and dance flow are synced with upbeat music.
Berglind Jónsdóttir has taught dance and gym classes at Kramhúsið for many years and has taken care of ever-populars classes, including Barre, Jazz Ballet, Eurovision, Spice Girls and RuPaul. Berglind always brings a great atmosphere, sweat and joy to all her classes.
We recommend to wear comfortable light clothing, sports shoes or barefoot.