Afró

English below

Næstu námskeið hefjast 4. september.

Kraftmiklir danstímar við heitan trommuslátt. Mikil hreyfing og rythmi. Afró er ekki bara skemmtilegt, heldur eykur það líka orku, styrk og þol. Tímar fyrir fólk af öllum stærðum og gerðum, alla aldurshópa og öll kyn.

  • Afró framhald- 13 vikur: Sandra Sano Erlingsdóttir, Mamady Sano ásamt trommaranum Alseny Sylla á mán. og miðv. kl. 18:30. Mamady kennir fram í enda október, eftir það kemur afleysingarkennari/trommari. Námskeiðið er til 2. desember.
  • Afró byrjendur og miðstig – 7 vikur: Baba Bangoura sér um kennsluna með Agnesi og Cheick Bangoura á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:45.
  • Afró & jóga – 7 vikur er á mánudögum og miðvikudögum kl. 09:00 með Kristínu Bergs.

Afró workout er á laugardögum með Söndru kl. 12:30

Útbúnaður: Léttur, þægilegur og mjúkur klæðnaður. Lanfglestir dansa berfættir en annars er hægt að vera með mjúksóla skó.

Öll námskeið hefjast með fyrirvara um næga skráningu.

*Nánari lýsing neðar

 

Nánari lýsing

Kennarar: Sandra Erlingsdóttir Sano, Mamady Sano, Baba Bangoura, Agnes Guðmundsdóttir Bangoura, Alseny Sylla, Cheick Bangoura, Rubin og Kristín Bergsdóttir

Afró framhald er með með danskennurunum Söndru Sano og Mamady Sano ásamt trommaranum Alseny Sylla. Mamady mun kenna fram í enda október en fer svo til Guineu. En Mamady fékk það stóra verkefni í hendurnar síðasta vetur að stjórna Merveille dansflokknum í Guineu Conakry sem er einn vinsælasti dansflokkur þar í landi. Námskeiðið verður fram til 2. desember. En það kemur afleysingar kennari/trommari fyrir Mamady þegar hann fer út. Sandra, Mamady og Alseny koma með heita strauma frá Gíneu og færa gleðina í húsið. Þau eru öll með yfir 20 ára reynslu af kennslu og sérhæfa sig í menningarheimi Gíneu í Vestur Afríku.

Baba Bangoura ásamt Agnesi leiðir byrjendur/miðstig hópinn af sinni alkunnu snilld en hann er vinsæll danskennari og danshöfundur í heimalandi sínu, Gíneu. Í tímunum er lögð áhersla á að þátttakendur upplifi ósvikna afríska stemningu með Cheick Bangoura sem er vel þekktur trommari og hefur kennt um árabil í Kramhúsinu.

Kristín Bergsdóttir leiðir Afró & jóga hópinn á morgnanna, kemur manni af stað inn í daginn með sinni einstakri orku og gleði. Tíminn byrjar á orkumikilli upphitun með afrískri tónlist í bland við Samba tóna. Síðari hluti tímans eru jógastöður, djúpar teygjur sem losa um stífa vöðva og slökun í lok tímans.

Afró tímar Kramhússins eru kraftmiklir danstímar við heitan trommuslátt. Mikil hreyfing og rythmi. Afró er ekki bara skemmtilegt heldur eykur það orku, styrk og þol. Tímar fyrir fólk af öllum stærðum og gerðum, alla aldurshópa og öll kyn. Það er óhætt að segja að Afró losar streitu úr líkamanum og endorfín steymir um líkamann eftir hvern tíma.

Teachers: Mamady Sano, Sandra Erlingsdóttir Sano, Baba Bangoura, Agnes Guðmundsdóttir Bangoura, Alseny Sylla, Cheick Bangoura, Rubin and Kristín Bergsdóttir.

Kramhusid offers a variety of Afro classes for people of all shapes and sizes, all ages and genders. Our traditional Afro courses, Afro Beginners/intermediate and Afro Advanced offers great dance and movement to the rhythm of  live drumbeat. Afro  It is not only fun, it also increases energy, strength and endurance. Afro Workout focuses on powerful exercises and afro dance routines. The Afro and Yoga class  focuses on the energy and joy of Afro combined with the challenging positions and relaxation of Yoga.

  • Afro advanced : Sandra Sano Erlingsdóttir will be teaching and Mamady Sano will be also teaching until the end of october. After that there will be a substitude teacher/drummer. Alseny Sylla on drums -on Mondays and Wednesdays – 18:30-19:45 – 13 weeks course.
  • Afro beginners and intermediate : Baba Bangoura supported by Agnes and Cheick Bangoura on drums  – on Mondays and wednesdays  19:45-20:55 – 7 weeks course.
  • Afró & yoga with Kristín Bergs on mondays and wednesdays at 09:00 – 7 weeks course.
  •  Afro Workout: Sandra Sano Erlingsdóttir – on Saturdays, 12:30

Courses are starting on the 4th September.

We recommend comfortable and soft clothing. The vast majority dances barefoot, but otherwise it is possible to wear soft-soled shoes.

Viðbótarupplýsingar

Afró Sano

V:22 tímabil 21.02.-30.03. 6 vikur, V:22 tímabil 31.01.-30.03. 9 vikur, V:22 tímabil 16.3.-04.04. 3 vikur, VOR22 6 vikur frá 25. apríl

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

IMG_7838

Græna kortið

Kram_Roberta_bara insta_

UPPSELT Beyoncé style

IMG_7947

Afró

Þyridans

Contemporary / Samtímadans