Nánari lýsing
Fyrir öll getustig – Kennt verður í samræmi við samsetningu hópsins: 2x í viku á þriðjudögum og fimmtudögum / classes twice per week, Tuesdays and Thursdays at 19:35-20:45. Opið að fara í laugardagstímann, Afró workout kl. 12:00 og aðra græna tíma á laugardögum.
7x vikna tímabil – 18. október – 3. desember. / Course period is 18th October – 3rd december.
Meistari Baba Bangoura mun leiða hópinn af sinni alkunnu snilld en hann er vinsæll danskennari og danshöfundur í heimalandi sínu, Gíneu. Í tímunum verður lögð áhersla á að þátttakendur upplifi ósvikna afríska stemningu þar sem leysist úr læðingi ótrúleg orka og gleði við að hreyfa sig eftir trylltum trommuslætti meistara Cheick Bangoura. Afró eru miklir brennslutímar sem hæfa fólki á öllum aldri. Afródansinn getur verið mjúkur og seiðandi og einnig kraftmikill og orkuríkur. Dansinn gefur hverjum og einum svigrúm til að njóta sín á eigin forsendum, jafnt vönum sem óvönum.
Master Baba Bangoura will lead the group with his well-known moves, but he is a popular dance teacher and choreographer in his home country, Guinea. During the classes, emphasis will be placed on the participants experiencing an authentic African atmosphere, where incredible energy and joy are released when they move along after the rhythmic drumbeat of master Cheick Bangoura. Afro dancing is cardio-heavy and suitable for people of all ages. Afroddancing can be soft and seductive and also powerful and energetic. The dance gives everyone the opportunity to enjoy themselves on their own terms, both familiar and unfamiliar.
Útbúnaður: Léttur, þægilegur og mjúkur klæðnaður. Langflestir dansa berfættir en annars er hægt að vera með mjúksóla skó. / Most people dance afro barefoot.