Afró - byrjendur/miðstig | Mán og Mið kl. 19:45| 6 vikur, Vorönn I, 2023

English below

Baba Bangoura sér um kennsluna með Agnesi og Cheick Bangoura til stuðnings.

Kennslan miðast við byrjendur og miðstig og kennt er tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:45-20:55.

Kennt verður í samræmi við samsetningu hópsins.

Innifalið eru þrír tímar á laugardögum; Afró Workout kl. 12:00, Músíkleikfimi og dans kl. 10:00 og Flex Body kl. 11:00.

*Nánari lýsing neðar

34.800 kr. or 17.400 kr. / á mánuði í 2 mánuði

In stock

Viltu staðgreiða eða greiðsludreifa?

Nánari lýsing

Afró byrjendur og miðstig
Kennt tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:45-20:55.
Sex vikna námskeið hefst 20. febrúar.

Meistari Baba Bangoura mun leiða hópinn af sinni alkunnu snilld en hann er vinsæll danskennari og danshöfundur í heimalandi sínu, Gíneu. Í tímunum verður lögð áhersla á að þátttakendur upplifi ósvikna afríska stemningu þar sem leysist úr læðingi ótrúleg orka og gleði við að hreyfa sig eftir trylltum trommuslætti meistara Cheick Bangoura. Afró eru miklir brennslutímar sem hæfa fólki á öllum aldri. Afródansinn getur verið mjúkur og seiðandi og einnig kraftmikill og orkuríkur. Dansinn gefur hverjum og einum svigrúm til að njóta sín á eigin forsendum, jafnt vönum sem óvönum. Útbúnaður: Léttur, þægilegur og mjúkur klæðnaður. Langflestir dansa berfættir en annars er hægt að vera með mjúksóla skó.

__________

Afro beginner/ intermediate.
Two classes per week, Mondays and Wednesdays at 19:45-20:55.
Six weeks course, starting Feb 20th.

Master Baba Bangoura will lead the group with Agnes. He is a popular dance teacher and choreographer in his home country, Guinea. During the classes, emphasis will be placed on the participants experiencing an authentic African atmosphere, where incredible energy and joy are released when they move along after the rhythmic drumbeat of Cheick Bangoura. Afro dancing is cardio-heavy and suitable for people of all ages. Afroddancing can be soft and seductive and also powerful and energetic. The dance gives everyone the opportunity to enjoy themselves on their own terms, both familiar and unfamiliar.

 

 

Viðbótarupplýsingar

Afró - Bangoura

VOR22 6 vikur frá 26. apríl, V:22 tímabil 22.02.-31.03. 6 vikur, V:22 tímabil 01.02-31.03. 9 vikur, V:22 tímabil 15.3.-31.03.

ÖNNUR NÁMSKEIÐ

Græna kortið Vorönn 2023

Beyoncé style

Contemporary / Samtímadans

Afró